Viðskiptaskilmálar

  1. Skilgreining
    Seljandi vörunnar er dekk1.is (Dekkja- og bílaþjónustan ehf.) , Funahöfða 6 110 Reykjavík, kennitala: 610920-0980, virðisaukaskattsnúmer 138829. Dekkja- og bílaþjónustan ehf. er skráð í Fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á síðunni.
  2. 30 daga skilaréttur
    Kaupandi getur skilað vöru, keyptri af seljanda, innan 30 daga, valið nýja vöru eða fengið vöruna endurgreidda að fullu. Við skil á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi og ónotuð. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka að varan sé í lagi. Seljandi áskilur sér rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 30 daga skilarétti.GILDIR FYRIR ALLAR VÖRUR að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
    • Reikningur er skilyrði fyrir vöruskilum.
    • Ef valið er að fá vöru endurgreidda er skilyrði að kaupnóta sé fyrir hendi eða að kaup séu skráð á kennitölu.
    • Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi og ónotuð
    • Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum.
    • Algjört skilyrði er að allir aukahlutir séu með vörunni.
    • Endurgreiðsla getur lækkað ef verða breytingar til lækkunar á aðflutningsgjöldum, virðisaukaskatti eða öðrum opinberum álögum.
  3. Verðvernd
    Við kappkostum að bjóða alltaf lægsta verðið á markaðnum. Ef kaupandi finnur sambærilega vöru hjá öðrum söluaðila á íslandi innan tveggja vikna frá kaupdegi endurgreiðum við kaupanda mismuninn og veitum að auka 10% afslátt. Samgærileg vara þarf að vera af sömu stærð og sömu gæðum.
    Tilkynnig kaupanda þarf að berast með tölvupósti á fyrirspurnir@Dekk1.is eigi síðar en 7 dögum eftir að pöntun átti sér stað (miðað er við dagsetningu pöntunar í pöntunarkerfi Dekk1.is)
  4. Pöntun
    Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur greitt vöru sína með einum að fjölmörgum greiðsluleiðum síðunnar. Seljandi er einnig bundinn að því að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup. Ýtarleg útlistun um möguleika riftunar má lesa í 10. grein þessa viðskilmála.
    Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér og yfirfara pöntunarstaðfestingu þegar hún berst.
    Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á. Vilji kaupandi breyta pöntun eftir að hafa fengið staðfestingu skal hann gera það samdægurs með því að senda tölvupóst með viðeigandi upplýsingum á netfangið fyrirspurnir@Dekk1.is
  5. Upplýsingar
    Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
    Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu þess efnis.
  6. Verð
    Dekk1.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verði eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
    Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega (skref 2 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun, t.d. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft í för með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu; sem dæmi má nefna bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verði og myndum. Verð getur breyst án fyrirvara.
  7. Greiðsla
    Hægt er að inna greiðslu af hendi á síðunni í lokaskrefi pöntunar og eru í boði nokkrar  ismunandi greiðsluleiðir. Einnig er hægt að greiða með millifærslu og þarf kaupandi þá að millifæra strax í framhaldi að því að hann lýkur við pöntun og milivægt er að setja pöntunarnúmer sem skýringu.
  8. Afhending
    Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram á vefsíðunni hverju má búast við miðað við valdan afhendingarmáta. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar, bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld eða tilkynna kaupanda að ekki sé hægt að afhenda pantaða vöru ef svo ber undir. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda. Geymslutími miðast við 2 vikur og eftir það áskilur Dekk1.is sér rétt til að rifta kaupum. Ef aðstæður krefjast þess að varan sé geymd er krafist mánaðarlegs geymslugjalds sem nemur um 5% af upphæð vörunnar.Eftirfarandi afhendingarmátar eru í boði
    Sækja í verslun - Verð 0 kr.:
    Við bjóðum upp á dekkjaafhendingu á dekkjaverkstæðum okkar á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ og er sú þjónusta án endurgjalds.
    Afhendingarstaðir:
    Dekk1.is - Reykjavík: Funahöfði 6, 110 Reykjavík Opið 09:00 - 18:00 alla virka daga Lokað um helgar
    Dekk1.is - Reykjanesbæ: Njarðarbraut 11, 260 Reykjanesbæ Opið 09:00 - 18:00 alla virka daga Lokað um helgar
    Sótt á næsta pósthúsi - Verð 2.000 kr. á hvert dekk:
    Við sendum dekkin þín hvert á land sem er í samstarfi við Póstinn. Sendingarkostnaður er aðeins 2000 kr á hvert sent dekk. Eftir að pöntun og greiðsla hefur borist munum við kappkosta að póstleggja pöntun þína eins fljótt og auðið er, en pakkar fara frá okkur alla virka daga yfir hánnartímann (1. október til 1 desember og 15 mars til 15 maí), en tvisvar sinnum í viku utan háannartíma.
    Pantanir sem berast inn fyrir klukkaan 10:00 eru sendar út samdægurs á virkum dögum, en þær pantanir sem berast síðar, koma inn um helgar eða á frídögum fara frá okkur næsta virka dag (þetta á við um vörur á lager yfir hánnartíma).
    Hér eru upplýsingar og staðsetningu og opnunartíma pósthúsa: http://www.postur.is/um-postinn/posthus/opnunartimi-stadsetning/
    Pantanir af birgðarlager (biðpantanir) eru háðar því að varan sé til á millilager og getur það tekið einn auka dag að koma þeim pöntunum í póst.
  1. Yfirferð á vörum
    Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu,. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.
  2. Réttur til galla eða vöntun
    Ef varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
    Tilkynning um galla verður að berast skriflega á fyrirspurnir@dekk1.is. Mælt er með að tilkynningin berist innan 7 daga frá því galli uppgötvast.
    Réttur neytanda (með neytanda er átt við einstakling utan atvinnustarfsemi) til að fá galla bættan er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003.
    Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka að varan sé gölluð.10. Ábyrgð
  3. Ábyrgð
    Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 og miðast við kaupdagsetningu til einstaklinga. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000.
    Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.
    Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum, þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en í 2 ár. Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þó að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók.
    Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur.
    Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála. Ef til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.
  4. Persónuvernd
    Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
    Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf, t.d. póstfang.
  5. Eignarréttur
    Seldar vörur eru eign seljanda þar til kaupverð er að fullu greitt.
    Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.
  6. Úrlausn vafamála
    Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda
  7. Skattar og gjöld
    Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.
TOP